Frá slökkviliði Dalvíkur; Eigið eldvarnareftirlit - til kynningar fyrir byggðaráð

Málsnúmer 201812003

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 889. fundur - 06.12.2018

Til kynningar meðfylgjandi sameiginleg greinargerð og árangursmat um samstarf Dalvíkurbyggðar og Eldvarnarbandalagsins um auknar eldvarnir, dagsett í nóvember 2018. Það er sameiginleg niðurstaða að undirbúningur verkefnisins hafi gengið vel, báðir aðilar hafa staðið við sinn hluta samkomulagsins og samskipti samstarfsaðilanna hafa verið með ágætum. Fram kemur að það er eindreginn vilji slökkviliðsstjóra að halda verkefninu áfram, það hafi gengið vel fyrir og sig og skili tilætluðum árangri.
Lagt fram til kynningar.