Frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu; Reglugerð um stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga í samráðgátt

Málsnúmer 201811152

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 889. fundur - 06.12.2018

Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett þann 30.11.2018, þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga. Í reglugerðinni er kveðið á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga fyrir Alþingi, að minnsta kosti á þriggja ára fresti til fimmtán ára í senn. Í stefnumótandi áætlun skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára.



Lagt fram til kynningar.