Breyting á lögum um félagsþjónustu sveitarfélagana sem taka gildi 1.okt 2018

Málsnúmer 201809070

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 221. fundur - 18.09.2018

Starfsmenn félagsþjónustu lögðu fram til kynningar ný lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 sem taka eiga gildi þann 1.október 2018. Farið var yfir breytingar á nýju lögunum frá þeim sem nú er í gildi.
Félagsmálaráð fór yfir ný lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og telur margt sem þar kemur fram óljóst hvað varðar breytingar á umfangi starfsins og fjármagnsþörf.