Skýrsla starfshóps um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Málsnúmer 201809027

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 103. fundur - 18.09.2018

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Á vorfundi íþrótta- og æskulýðsráðs var samþykkt að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi myndi vinna með íþróttafélögum í Dalvíkurbyggð að innleiðingu verkferla um viðbrögð við kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun. Ráðið leggur til að stefnt verði að því að klára þessa vinnu á þessu ári.