Fjárhagsáætlun 2018; hækkun á útsvarsáætlun 2018 - viðauki

Málsnúmer 201809012

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 876. fundur - 06.09.2018

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 11:31 til annarra starfa.

Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti útreikninga á endurskoðun á áætluðu útsvari 2018 vegna vinnu við heildarviðauka II, með fyrirvara um eftirálagningu staðgreiðslu sem liggur ekki fyrir.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu til næsta fundar.

Byggðaráð - 877. fundur - 13.09.2018

Á 876. fundi byggðaráðs þann 6. september 2018 var eftirfarandi bókað:
"Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 11:31 til annarra starfa. Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti útreikninga á endurskoðun á áætluðu útsvari 2018 vegna vinnu við heildarviðauka II, með fyrirvara um eftirálagningu staðgreiðslu sem liggur ekki fyrir.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu til næsta fundar. "

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að láta gildandi áætlun 2018 standa óbreytta um sinn.