Frá Soroptimistaklúbbi Tröllaskaga; Ungar stúlkur til sjálfseflingar - beiðni um styrk

Málsnúmer 201806018

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 869. fundur - 22.06.2018

Tekið fyrir erindi frá Soroptimistaklúbbi Tröllaskaga, dagsett þann 30. maí 2018, þar sem fram kemur að klúbburinn hefur áhuga á að styrkja ungar stúlkur til sjálfseflingar og leitað er eftir fjárhagsstuðningi til að halda sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 12 - 13 ára stúlkur á Tröllaskaga haustið 2018. Áætlaður kostnaður við námskeiðshaldið er kr. 500.000 og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi. Byggðaráð leggur áherslu á að ef sveitarfélagið veitir styrki til námskeiða af þessum toga þá sé það óháð kyni.