Tillaga um frestun sveitarstjórnarfunda samkvæmt 8. gr., 4. mgr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.

Málsnúmer 201806010

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 304. fundur - 11.06.2018

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu, dagsett þann 1. júní 2018:

Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2018.

Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 12. júní 2018 til og með 31. ágúst 2018.


Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um frestun funda sveitarstjórnar.