Frá Landskerfi bókasafna hf.; Aðalfundur 2018

Málsnúmer 201805060

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 868. fundur - 24.05.2018

Tekið fyrir bréf frá Landskerfi bókasafna hf., dagsett þann 9. maí 2018, þar sem boðað er til aðalfundar miðvikudaginn 30. maí n.k. kl. 15:00 í Reykjavík. Meðfylgjandi er einnig rafpóstur frá 22. maí 2018 þar sem hjálagður er ársreikningur félagsins fyrir árið 2017, tillögur sem lagðar verða fram á fundinum auk núgildandi samþykkta félagsins.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns að sækja fundinn ef hún hefur tök á og til vara sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.