Frá Málræktarsjóði; Aðalfundur 2018

Málsnúmer 201805046

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 868. fundur - 24.05.2018

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 9. maí 2018 þar sem fram kemur að aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 8. júní kl. 15.30 á Hótel Sögu, í fundarsalnum Esju. Samkvæmt skipulagsskrá eiga samtök, fyrirtæki og stofnanir, sem lögðu sjóðnum til fé fyrir árslok 1992, rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið. Dalvíkurbyggð hefur þennan rétt en átti ekki fulltrúa á síðasta fundi. Tilnefningar fyrir aðalfundinn 2018 þurfa að berast framkvæmdastjóra í tölvupósti eigi síðar en 28. maí nk. ásamt netfangi þess sem tilnefndur er.

Lagt fram til kynningar.