Frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar; Hækkun á framlagi sveitarfélaga 2018 til AFE

Málsnúmer 201805011

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 866. fundur - 03.05.2018

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 2. maí 2018 frá framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar þar sem kynnt er eftirfarandi bókun frá stjórnarfundi AFE þann 16. apríl s.l.:

"Stjórn AFE samþykkir tillögu framkvæmdastjóra um að leggja fram á aðalfundi AFE 3% hækkun framlaga frá sveitarfélögunum.

Framkvæmdastjóra falið að kynna það fyrir sveitarstjórnum fyrir aðalfund. "

Lagt fram til kynningar.