Ósk um viðlegupláss

Málsnúmer 201804015

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 73. fundur - 11.04.2018

Með rafpósti sem dagsettur er 3. apríl 2018
óskar Össur Willard eftir viðleguplássi í Dalvíkurhöfn frá
byrjun maí fyrir 10 metra ribbát. Óskað er eftir plássi við flotbryggju. Báturinn verður notaður til farþegaflutninga og aðra atvinnustarfssemi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsóknina og felur sviðsstjóra og hafnavörðum að finna hentugt legupláss fyrir umsækjanda.