Ungt fólk og lýðræði 2018

Málsnúmer 201803121

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð - 16. fundur - 28.03.2018

Hera Margrét gerði grein fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði 2018, sem hún sótti á dögunum. Ráðið fór yfir punkta frá ráðstefnunni og ræddi um framtíð og markmið ráðsins.

Ungmennaráð - 17. fundur - 25.04.2018

Lögð fram til kynningar ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ, Ungt fólk og lýðræði, var haldin á Hótel Borealis í Grímsnes- og Grafningshreppi dagana 21. - 23.mars 2018. Ungmennaráð óskar eftir því að ályktunin verði kynnt byggðaráði og íþrótta- og æskulýðsráði.

Ályktunin:
Forsvarsmenn ráðstefnunnar þakka þeim sveitarfélögum og félagasamtökum sem hafa stofnað ungmennaráð og veitt ungmennum vettvang til áhrifa.

Ungmennum á Íslandi finnst vegir landsins vera í niðurníðslu. Bæta þarf samgöngur um allt land og veita sveitarfélögum heimild til að laga vegi sem heyra undir Vegagerðina. Þar má nefna Grindavíkurveginn þar sem að mörg alvarleg- og banaslys hafa orðið á þeim vegi. Ungt fólk notar samgöngur daglega, hvort sem þau séu farþegar eða ökumenn og viljum við öll að þau komist heilu og höldnu til náms eða í vinnu. Samgöngubætur má fjármagna með komugjöldum á erlenda ferðamenn, þar sem þeir eru orðnir stór hluti þeirra sem nota vegakerfi landsins. Lítils háttar komugjald þarf til að fjármagna endurbætur á vegakerfinu.

Kvíði og þunglyndi hefur aukist mikið í röðum ungmenna á grunnskóla- og framhaldsskólaaldri. Stytting framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú og minni tími nemenda til að sinna félagsstörfum er að stórum hluta orsakavaldur að mati ungmenna. Það þarf að festa það í lög að það séu starfandi sálfræðingar í öllum grunn- og framhaldssólum á landinu. Einnig vantar betri forvarnir í geðheilbrigðismálum og gætu starfandi skólasálfræðingar séð um þá fræðslu.

Þátttakendur ráðstefnunnar ræddu mikið um lækkun kosningaaldurs niður í 16 ár í sveitastjórnakosningum. Lýðræðisfræðsla og stjórnmálafræðsla þarf að vera aukin í grunn- og framhaldsskólum og nauðsynlegt er að gera heimasíðu Alþingis aðgengilegri og skiljanlegri.

Ráðstefnan þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir að standa að ráðstefnu á borð við Ungt fólk og lýðræði. Við viljum einnig þakka Evrópu unga fólksins fyrir að veita okkur styrk og gera okkur kleift að halda ráðstefnuna. Hún gefur ungu fólki færi á að mynda, auka og víkka tengslanet sitt, ræða viðhorf sín, koma þeim á framfæri og sanna fyrir jafningjum sínum að ungmenni geti haft áhrif. Við hvetjum til þess að ráðstefna sem þessi verði haldin á hverju ári og megi aðrir taka ungmennaráð UMFÍ sér til fyrirmyndar.
Ungt fólk er ekki bara framtíðin, við erum til núna og höfum áhrif í dag!

Íþrótta- og æskulýðsráð - 100. fundur - 15.05.2018

Ályktun frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem var haldin dagana 21.-23.mars sl. lögð fram til kynningar.