Frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu; Beiðni um upplýsingar vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum EES árið 2017

Málsnúmer 201802051

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 857. fundur - 22.02.2018

Tekið fyrir erindi frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, rafbréf dagsett þann 13. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum EES fyrir 2017, fyrir 28. febrúar 2018.
Byggðaráð vísar ofangreindu erindi til framkvæmdastjórnar til úrvinnslu.

Byggðaráð - 859. fundur - 08.03.2018

Á 857. fundi byggðaráðs þann 22. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, rafbréf dagsett þann 13. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum EES fyrir 2017, fyrir 28. febrúar 2018.
Byggðaráð vísar ofangreindu erindi til framkvæmdastjórnar til úrvinnslu. "

Á fundinum var gerð grein fyrir svörum og umfjöllun framkvæmdastjórnar um ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fyrirliggjandi upplýsingar verði sendar til ráðuneytisins fullunnar.