Frá Árna Frey Árnasyni; Umsókn um leigu á "Hreiðrinu"

Málsnúmer 201802033

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 857. fundur - 22.02.2018

Tekið fyrir erindi frá Árna Frey Árnasyni, rafpóstur dagsettur þann 8. febrúar 2018, þar sem hann óskar eftir að fá aðgang/ leigðan neðri hluta "Hreiðursins" sem Skíðafélag Dalvíkur er með afnot af, fyrir sleðaleigu sem hann starfrækir.


Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi. Ekki er áætlað að leigja út Hreiður að svo stöddu og ef yrði tekin ákvörðun um útleigu þá yrði húsnæðið auglýst.

Byggðaráð - 859. fundur - 08.03.2018

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Árni Freyr Árnason kl. 14:30 en hann rekur fyrirtæki sem býður upp á snjósleðaleigu og snjósleðaferðir. Árni Freyr kynnti starfsemi fyrirtækisins.


Árni Freyr vék af fundi kl. 14:59.
Lagt fram til kynningar.