Frá Rætur bs.; Uppgjör 2017

Málsnúmer 201802025

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 857. fundur - 22.02.2018

Tekinn fyrir rafpóstur frá Kristjáni Jónassyni endurskoðanda hjá KPMG fyrir hönd Rætur bs. er varðar uppgjör fyrir Rætur bs. vegna ársins 2017. Samkvæmt þeim drögum á Dalvíkurbyggð að greiða kr.845.881 vegna málefna fatlaðra.

Samkvæmt lykli 29-500-73412 þá er bókuð skuld Dalvíkurbyggðar kr. -1.990.663 miðað þannig að ofangreint uppgjör fellur innan þeirrar fjárhæðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint uppgjör skv. meðfylgjandi gögnum og greiðslu á kr. 845.881 til Rætur bs.