Frá Ragnari Þ. Þóroddssyni; Útgáfa bókar um Brimar - "Tabula Gratulatoria"

Málsnúmer 201802022

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 855. fundur - 08.02.2018

Tekið fyrir dreifibréf frá Ragnari Þ. Þóroddsyni, ódagsett en móttekið þann 5. febrúar 2018, þar sem gefinn er sá kostur að nafn og lógó fyrirtækis/stofnunar/sveitarfélags verði ritað á "Tablula Gratulatioria" blaðsíðu í bók um Brimar "Demanta Dalvíkur" sem kemur út um mitt árið 2018 til heiðurs hans arfleiðar. Gert er ráð fyrir að lágmarki kr. 50.000 sem endurgjald.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 100.000, vísað á lið 21010-4915.