Frá Markaðsstofu Norðurlands; Áskorun vegna uppbyggingar á Akureyrarflugvelli til millilandaflugs

Málsnúmer 201801079

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 853. fundur - 25.01.2018

Tekin fyrir árskorun Markaðsstofu Norðurlands, dagsett þann 22. janúar 2018, vegna uppbyggingar á Akureyrarflugvelli til millilandaflugs.

Þar segir m.a.:
"Markaðsstofa Norðurlands skorar á stjórnvöld að tryggja strax fjármagn til þess að kaupa og setja upp ILS aðflugsbúnað fyrir aðflug úr norðri á Akureyrarflugvelli. Jafnframt að gerð verði áætlun, og hún fjármögnuð, um uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til framtíðar svo hann geti þjónað hlutverki sínu sem varaflugvöllur og millilandaflugvöllur Norðurlands. Það felur m.a. í sér stækkun flugstöðvarinnar, stækkun flughlaðsins og að tryggja að flugvöllurinn sé sem best tækjum búinn."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka undir ofangreinda áskorun Markaðsstofu Norðurlands.