Frá Akureyrarakademíunni; Ósk um styrk vegna "Konur upp á dekk! Hagnýt fræðsla og samræðuþing um stjórnmál"

Málsnúmer 201801049

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 852. fundur - 18.01.2018

Tekið fyrir rafbréf frá framkvæmdastjóra AkureyrarAkademíunnar, dagsett þann 12. janúar 2018, þar sem óskað er eftir styrk vegna "Konur upp á dekk! Hagnýt fræðsla og samræðuþing um stjórnmál". Fræðslan er á Akureyri tvo laugardaga, þann 27. janúar og 3. febrúar 2018. Markmiðið er að hvetja konur til þátttöku í stjórnmálum og skapa vettvang þar sem m.a. er hægt er að kynna sér stjórnsýsluna, sögu kvenna í stjórnmálum og stöðuna í dag. Einnig verður farið yfir áhrif #MeToo byltingarinnar, siðferði í stjórnmálum og samræðustjórnmál. Fræðsla verður um framkomu og tjáningu, hvernig á að koma sér á framfæri, fundi og fundarsköp og hlutverki samfélagsmiðla þegar kemur að stjórnmálaþátttöku. Aðstandendur viðburðarins leggja áherslu á að hægt sé að halda kostnaði þátttakenda í lágmarki. Því óskum við eftir styrk frá Dalvíkurbyggð til að halda fræðsluna.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita styrk að upphæð kr. 25.000, vísað á 21010-4965. Byggðaráð hvetur konur í Dalvíkurbyggð að nýta sér þetta tækifæri.