Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Tímabundið tækifærisleyfi v/þorrablóts í Árskógi

Málsnúmer 201801027

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 852. fundur - 18.01.2018

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 9. janúar 2018, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Þorrablótsnefndar um tímabundið tækifærisleyfi til að halda þorrablót í félagsheimilinu Árskógum 3. febrúar n.k. Forsvarsmaður er Guðrún H. Ragúels, kt. 070970-3849.

Fyrir liggja umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.