Frá Varasjóði húsnæðismála; Umsókn um framlag vegna sölu á félagslegu leiguíbúðarhúsnæði

Málsnúmer 201712098

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 850. fundur - 04.01.2018

Tekið fyrir svarbréf frá Varasjóði húsnæðismála, dagsett þann 20. desember 2017, þar sem fram kemur að umsóknir Dalvíkurbygðgar, dagsettar 23. október 2017 um framlag vegna sölu á félagslegu leiguíbúðarhúsnæði, Lokastíg 1 201, Lokastíg 2 202, Lokastíg 2 303 og Kirkjuveg 9, voru teknar fyrir á fundi nefndarinnar þann 12. desember 2017. Niðurstaðan er að Dalvíkurbyggð er synjað um söluframlag þar sem Dalvíkurbyggð uppfyllir ekki það ákvæði í reglum nefndarinnar um að félagslegt húsnæði hafi staðið autt og lítil eftirspurn sé eftir því til leigu í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.