Styrkbeiðni vegna rekstur Aflsins 2018

Málsnúmer 201712019

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 213. fundur - 12.12.2017

Erindi barst frá Aflinu - Samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis dags. 20. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir rekstarstyrk. Óskað er eftir styrk svo hægt sé að halda áfram að þróa Aflið og styðja á sem faglegastan hátt við brotaþola ofbeldis í heimabyggð. Það er samfélagsleg ábyrgð okkar allra að stuðla að bættri þjónustu við brotaþola og aðstandendur þeirra. Öll framlög eru vel þegin.
Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Aflið um 100.000,- krónur tekið af lið 02-80.