Frá Velferðarráðuneytinu; Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses - stofnun

Málsnúmer 201711099

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 850. fundur - 04.01.2018

Tekið fyrir bréf frá Velferðarráðuneytinu, dagsett þann 19. desember 2017, þar sem fram kemur að ráðuneytið staðfestir samþykktir fyrir Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses, sbr. erindi þess efnis dagsett þann 15. desember 2017.
Lagt fram til kynningar.

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 4. fundur - 09.02.2018

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir samskiptum við Íbúðalánasjóð varðandi samning um stofnframlag. Hægt er nú að gera slíkan samning, og er hann í vinnslu hjá Íbúðalánasjóði, þar sem búið er að stofna félagið og komið er landnúmer fyrir lóðina þar sem íbúðirnar eiga að rísa.
Lagt fram til kynningar.