Frá slökkviliðsstjóra; Vegna yfirvofandi framúrkeyrslu

Málsnúmer 201711073

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 846. fundur - 23.11.2017

Tekið fyrir bréf frá slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 15.11.2017, þar sem gert er grein fyrir að launaliðir hjá deild 07210; Slökkvilið Dalvíkur, fari fram úr samþykktri fjárhagsáætlun. Óskað er eftir að ekki komi til skerðingar á þeim fjármunum sem eftir standa til endurnýjunar og viðhalds til jöfnunar á launaliðum.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.