Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga

Málsnúmer 201710040

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 841. fundur - 19.10.2017

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 12. október 2017, þar sem fram kemur að hag- og upplýsingasvið Sambandsins hefur gefið út staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2017 og 2018. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er gert ráð fyrir að útsvarsstofninn hækki að meðaltali á öllu landinu um 8,0 % á milli ára 2017 og 2018.



Lagt fram til kynningar.