Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Umsögn vegna takmarkana á 7.gr. laga um stjórn fiskveiða

Málsnúmer 201709158

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 836. fundur - 28.09.2017

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 25. september 2017 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem fram kemur að meðfylgjandi er beiðni frá Sjávarútvegsráðuneyti um umsögn vegna laga um stjórn fiskveiða.

Umsögnin lýtur að beiðni Samtaka smærri útgerða um að bann við notkun annarra veiðarfæra en línu og handfæra við veiðar skv. krókaaflamarki verði aflétt. Telja samtökin bannið feli í sér mismunun þar sem útgerðir aflamarksskipa hafi getað skipt um veiðarfæri til að bregðast við breyttum aðstæðum.

Þau sveitarfélög sem hyggjast veita umsögn eru beðin um að senda umsögn sína til Sambandsins í síðasta lagi 13. október n.k.
Lagt fram til kynningar.