Myndir af oddvitum, hrepps- og sveitarstjórum Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201709131

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 64. fundur - 21.09.2017

Lagt fram til umræðu.
Menningarráð tekur vel í hugmyndina og leggur til að sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs verði falið að útfæra hugmyndina í samræmi við umræður á fundinum og koma með tillögu á næsta fund menningarráðs.

Menningarráð - 72. fundur - 07.02.2019

Þann 21.september 2017 var á dagskrá menningarráðs umræða um myndir af oddvitum, hrepps- og sveitarstjórum í Dalvíkurbyggð. Niðurstaða þess fundar var að Menningarráð tekur vel í hugmyndina og leggur til að sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs verði falið að útfæra hugmyndina í samræmi við umræður á fundinum og koma með tillögu á næsta fund menningarráðs.

Farið var yfir málið á fundinum.
Menningarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að þetta sé ekki forgangsverkefni að sinni.