Kostnaðarskipting á rekstri TÁT 2018 - 2019

Málsnúmer 201709080

Vakta málsnúmer

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 5. fundur - 12.09.2017

Drög að kostnaðarskiptingu vegna launa og launatengdra gjalda fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskaga.
Skólanefnd TÁT samþykkir framlagða kostnaðarskiptingu miðað við þær breytingar sem fram hafa komið og með þeim fyrirvara að ekki komi til óvæntra breytinga.