Fjárhagsáætlun 2018; Frá Hafþóri Gunnarssyni; frágangur á svæðum í kringum lóð

Málsnúmer 201709007

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 833. fundur - 07.09.2017

Tekið fyrir erindi frá Hafþóri Gunnarssyni, rafpóstur dagsettur þann 31. ágúst 2017, er varðar frágang og umhirðu á svæðum er liggja að lóð hans.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar umhverfisráðs og óskar eftir tillögu að afgreiðslu.

Umhverfisráð - 295. fundur - 15.09.2017

Tekið fyrir erindi frá Hafþóri Gunnarssyni, rafpóstur dagsettur þann 31. ágúst 2017, er varðar frágang og umhirðu á svæðum er liggja að lóð hans.
Ekki er hægt að verða við erindinu þar sem deiliskipulag svæðisins liggur ekki fyrir, en vinnan við það er komin vel á veg.
Samþykkt með fimm atkvæðum.