Auglýsingar á sundlaugarsvæði

Málsnúmer 201705129

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 91. fundur - 06.06.2017

Tekið fyrir erindi frá Sundfélaginu Rán. Sundfélagið óskar eftir því að fá að selja auglýsingar á sundlaugarsvæðinu og óskar eftir aðkomu Dalvíkurbyggðar við að koma upp standi á svæðinu.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að kanna með hvaða hætti aðrir sundstaðir eru að gera þetta. Einnig þarf samhliða að skoða hvort og þá með hvaða hætti slíkar auglýsingar yrðu seldar í íþróttasalnum.