Ósk um breytingu á gangnadögum haustið 2017

Málsnúmer 201705117

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 111. fundur - 08.06.2017

Með innsendu erindi dags. 5. maí 2017 óskar Zophonías Jónmundsson eftir breytingu á gangnadögum.
Vegna beiðni frá Zophoníasi Jónmundssyni um að fá að framkvæma fyrstu göngur 26. til 27. ágúst eða 2.-3. september 2017, samþykkir landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar að veita frávik um viku frá auglýstum gangnadögum og þá með þeim skilyrðum að leggja til gangnamenn helgina 8-10 september á Ytra- Holtsdal samhliða áður auglýstum gangnadögum.

Landbúnaðarráð vill benda á að ekki hafa verið gerðar athugasemdir við að bændur smali sín heimaupprekstarlönd á sína ábyrgð vegna sumarslátrunar óháð auglýstum gangnadögum, en taka skal fram að ef komi fram ókunnugt fé við þannig smölun þá skal því komið aftur á fjall.

Samþykkt með þremur atkvæðum.