Frá Samgöngustofu; Beiðni um umsögn um ökutækjaleigu.

Málsnúmer 201705082

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 821. fundur - 11.05.2017

Tekið fyrir erindi frá Samgöngustofu, dagsett þann 8. maí 2017, þar sem óskað er umsagnar samkvæmt 2 mgr. 3. gr. laga nr. 65/2015 um ökutækjaleigur vegna umsóknar Jóhanns Peter Andersen, kt. 101044-3199, um að reka ökutækjaleigu að Skíðabraut 18. 620. Dalvík. Sótt er um leyfi fyrir 1 ökutæki í útleigu. Samkvæmt 3. gr. laga nr. 65/2015 um ökutækjaleigur skal starfsleyfi veitt að fenginni jákvæðri umsögn sveitarstjórnar í því umdæmi sem ökutækjaleiga mun hafa fasta starfsstöð.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint starfsleyfi verði veitt.