Frá Landsneti ehf.; Matslýsing vegna kerfisáætlunar 2017-2026

Málsnúmer 201705021

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 821. fundur - 11.05.2017

Tekinn fyrir rafpóstur frá Landsneti, dagsettur þann 3. maí 2017, þar sem fram kemur að Landsnet vinnur að undirbúningi við mótun kerfisáætlunar sem er ætlað að gefa heildarsýn yfir þróun flutningskerfis raforku á næstu árum. Hér með er kynnt matslýsing áætlunarinnar með von um að sem flestir kynni sér efni hennar.Matslýsingin er aðgengileg á heimasíðu Landsnets www.landsnet.is. Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við matslýsinguna er til og með 30. maí 2017.







Lagt fram til kynningar.