Frá framkvæmdastjóra Bergs ses.; Breyting á stjórn Menningarfélagsins Bergs

Málsnúmer 201704054

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 819. fundur - 27.04.2017

Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra Bergs menningarhús fyrir hönds stjórnar Menningarfélagsins Bergs ses., bréf dagsett þann 11. apríl 2017, þar sem bent er á að samkvæmt skipulagsskrá fyrir Menningarfélagið Berg ses. er kominn tími á að kjósa báða fulltrúa Dalvíkurbyggðar á næsta aðalfundi og þarf því að tilnefna nýja fulltrúa, aðalmann og varamann til tveggja ára, eða þá sömu áfram fyrir aðalfund sem verður haldinn um miðjan maí.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við menningarráð að ekki verði breyting á fulltrúum Dalvíkurbyggðar, þ.e. Valdemar Þór Viðarsson, aðalmaður og Margrét Víkingsdóttir, varamaður.