Heimsókn í atvinnumála- og kynningarráð

Málsnúmer 201701087

Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð - 24. fundur - 25.01.2017

Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri AFE, Baldvin Valdemarsson, verkefnastjóri hjá AFE og Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá AFE, komu á fund ráðsins kl. 13:00 og kynntu starfsemi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE)og helstu verkefni.

Þau viku af fundi kl. 14:40.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar starfsfólki AFE fyrir greinargóða kynningu og góðar umræður í kjölfarið. Stefnt er að öðrum fundi með AFE síðar á árinu.