Kjarasamningsmál Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum

Málsnúmer 201612093

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 806. fundur - 21.12.2016

Til umræðu ofangreint en fulltrúar tónlistarkennara í Dalvíkurbyggð hafa komið að máli við nokkra kjörna fulltrúa í Dalvíkurbyggð um stöðuna í kjarasamningsviðræðunum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hvetja samningsaðila að ná samkomulagi sem fyrst enda eru tónlistarkennarar búnir að vera lengi samningslausir og mikilvægt er að eyða þeirri óvissu sem ríkir.