Erindi vegna breytingar á fyrirkomulagi gangna í Árskógsdeild 2016.

Málsnúmer 201609046

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 107. fundur - 20.09.2016

Með innsendum rafpósti dags. 6. september 2016 óskar Guðlaugur Axel Ásólfsson eftir því að landbúnaðarráð endurskoði ákvörðun sína frá 106. fundi ráðsins þann 11. ágúst 2016 er varðar ósk fjallskiladeildar Árskógsdeildar um breytt fyrirkomulag gangna haustið 2016.
Erindið lagt fram til kynningar ásamt svarbréfi sem sent var bréfritara 7. september 2016.