Bréf frá þjóðleikhússtjóra v. leiksýning Örninn

Málsnúmer 201609022

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 201. fundur - 06.09.2016

Tekið var fyrir erindi frá Þjóðleikhússtjóra vegna leikferðar Þjóðleikhússins dags. 21. júní 2016. Þar er kynnt að í októbermánuði muni Þjóðleikhúsið leggja land undir fót og bjóða 5-6 ára börnum víðsvegar um landið að njóta barnaleiksýningar í boði leikhússins. Sýningin heitir Lofthræddi örninn hann Örvar. Sveitarfélagið þyrfti að útvega sýningarrými sem og gistingu fyrir leikara.
Félagsmálaráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að óska eftir leiksýningunni til Dalvíkurbyggðar. Félagsmálaráð myndi taka að sér að útvega rými fyrir sýningu og gistingu leikara, tekið af lið forvarnar 02-32-4396.