Umsókn um byggingarleyfi fyrir smáhýsi á lóðinni Hamar lóð B6

Málsnúmer 201608043

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 280. fundur - 26.08.2016

Með erindi dags. 16. ágúst 2016 óska þau Davíð Stefánsson og Jónína Vilborg Björgvinsdóttir eftir leyfi til að byggja 14,5 m2 gestahús á lóð sinni Hamar lóð B6.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.

Samþykkt með fimm atkvæðum.