Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi - Gísli, Eiríkur og Helgi (stækkun)

Málsnúmer 201607086

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 785. fundur - 11.08.2016

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 28. júlí 2016, þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um umsókn Kristínar A. Símonardóttur, kt. 190964-2729, fyrir hönd Gísla, Eiríks og Helga ehf., kt. 520713-1580, er varðar viðbót á rekstrarleyfi vegna efri hæðar; flokkur III.



Fyrir liggur jákvæð umsögn frá byggingafulltrúa, dagsett þann 28. júlí 2016, og jákvæð umsögn frá slökkviliðsstjóra, dagsett þann 29. júlí 2016, að því gefnu að fylgt verði leiðbeiningum slökkviliðs varðandi þann frágang á húsnæði sem er enn ólokið.



Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.