Frá innanríkisráðuneytinu; Tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar

Málsnúmer 201606124

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 782. fundur - 30.06.2016

Tekið fyrir bréf frá innanríkisráðuneytinu, dagsett þann 24. júní 2016, þar sem vakin er athygli sveitarfélaga á tilraunaverkefninu um rafrænar íbúakosningar. Sveitarfélög sem hyggjast halda íbúakosningar eru hvött til að kynna sér verkefnið og gefa sig fram við Þjóðskrá Íslands, hafi þau áhuga á þátttöku.
Lagt fram til kynningar.