Frá Akureyrarkaupstað; Tilkynning um auglýsingu á skipulagslýsingu fyrir Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030.

Málsnúmer 201603043

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 278. fundur - 15.03.2016

Tekið fyrir erindi frá bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar, bréf dagsett þann 2. mars 2016, þar sem fram kemur að á fundi bæjarstjórnar þann 16. febrúar 2016 samþykkti bæjarstjórn að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar fyrir 17. mars 2016.

Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindu til umhverfis- og tæknisviðs.