Framlenging á samstarfssamningi við Markaðsstofu Norðurlands

Málsnúmer 201512033

Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð - 15. fundur - 13.01.2016

Tekið fyrir erindi dagsett 9. desember 2015 frá Markaðsstofu Norðurlands(MN) þar sem hún fer þess á leit að samstarfssamningur á milli MN og Dalvíkurbyggðar verði endurnýjaður en fyrri samningur rann út nú um áramótin. Meðfylgjandi erindinu er yfirlit yfir helstu þætti í starfi MN á síðasta ári.
Atvinnumála og kynningarráð samþykkir með 4 atkvæðum að samstarfssamingur milli Markaðsstofu Norðurlands og Dalvíkurbyggðar verði framlengdur.