fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 201506052

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 191. fundur - 21.09.2015

Viktor Már Jónasson þurfti að víkja af fundi kl. 20:30 vegna útkalls í vinnu. Gert var fundarhlé á meðan hann var fjarverandi. Viktor kom aftur til fundar 21:15
Félagsmálastjóri kynnti drög að fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2016. Félagsmálastjóri fór yfir frávik frá fjárhagsáætlun en ljóst er að 18.000.000 króna gat er frá ramma að áætlun. Útskýringar á þessum frávikum eru aðallega launaskrið, minni tekjur frá Rótum bs, aukin fjárhagsaðstoð, 50% starf í heimilisþjónustu sbr. viðauka frá 17. september 2016, aukin þörf fyrir liðveislu, bæði fyrir börn og fullorðna auk sumarvinna fyrir ungmenni með fötlun.
Félagsmálaráð fór yfir drög að áætlun sviðsins. Ljóst er að úthlutaður rammi fyrir árið 2016 dugar ekki í þjónustuna fyrir árið 2016 og samþykkir félagsmálaráð áætlun með fyrirvara um viðauka.