Málstofan komdu þínu á framfæri

Málsnúmer 201501133

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð - 5. fundur - 29.01.2015

Mánudaginn 9. febrúar kl. 15.00 - 17.30 í Víkurröst, stendur Æskulýðsvettvangurinn fyrir fundi með ungu fólki og þeim sem bera ábyrgð á málefnum ungs fólks í sveitarfélaginu.

Viðfangsefni fundarins er skipt upp í fjóra flokka, menntun, íþróttir og æskulýðsmál, samfélagið mitt og listir og menning. Fundarformið skiptist upp í fjórar 20 mín lotur. Allir þátttakendur fá að koma sínum skoðunum á framfæri í öllum flokkunum.
Allt ungt fólk er velkomið, þátttaka er ókeypis og verða léttar veitingar í boði.

Ungmennaráð mun aðstoða við undirbúning á viðburðinum.
Ungmennaráð hvetur ungmenni á svæðinu að mæta á þennan fund.