Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar; tillaga um breytingu.

Málsnúmer 201501111

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 724. fundur - 22.01.2015

Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, með vísan umræðu vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2015-2018, að breytingum á Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar er varðar viðbót um vinnuhópa vegna stærri fjárfestinga og framkvæmda. Tillagan hefur verið rædd og yfirfarin á fundi framkvæmdastjórnar og er meðfylgjandi með áorðnum breytingum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og fagnar þessum áfanga.