Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Vinnureglur um tilkynningu slysa í vinnu og utan vinnu - drög.

Málsnúmer 201501031

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 731. fundur - 09.04.2015

Tekið fyrir frá sviðssjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs drög að vinnureglum um tilkynningu slysa í vinnu og utan vinnu. Fram kom á fundinum að drögin hafa verið send öllum stjórnendum sveitarfélagsins og launafulltrúa til umsagnar.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreindar vinnureglur verði hluti af stjórnendahandbók, eins og þær liggja fyrir.