Samstarfssamningur Árskógarskóla og Félagsheimilisins í Árskógi

Málsnúmer 201408071

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 59. fundur - 02.09.2014

Lögð voru fram drög að samstarfssamningi milli Árskógarskóla og Félagsheimilsins í Árskógi. Um er að ræða samning á því samstarfi sem verið hefur. Hlutverk og ábyrgð hvors aðila er skýrt í samningum til að taka af allan vafa um það hver beri ábyrgð á verkefnum og kostnaði tengdum félagsheimilinu, s.s. rafmagn, snjómokstur, rekstur og umsjón.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samninginn eins og hann liggur fyrir og vísar honum til sveitarstjórnar til afgreiðslu.