Innkomið erindi vegna kastbúrs á íþróttasvæði

Málsnúmer 201406104

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 252. fundur - 25.06.2014

Með rafpósti dags. 19. maí 2014 óskar Árni Anton Júlíusson fyrir hönd Fosshótela eftir viðbrögðum frá sveitarfélaginu vegna sjónmengunar af kastbúri sem staðsett er á íþróttasvæðinu.
Umhverfisráð þakkar ábendinguna og bendir á að svæðið sem um ræðir er í skipulagsferli þar sem hlutaðeigandi gefst kostur á að gera athugasemdir.