Frá Pétri Einarssyni; Ósk um fund vegna ráðningar bæjarlögmanns.

Málsnúmer 201406099

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 701. fundur - 26.06.2014

Tekið fyrir erindi frá Pétri Einarssyni, lögmanni, til heimilis að Selá í Dalvíkurbyggð, bréf dagsett þann 11. júní 2014, þar sem fram kemur að Pétur býður Dalvíkurbyggð lögfræðiþjónustu, annað hvort á verktakagrunni eða með starfssamningi. Óskar Pétur eftir fund með sveitarstjóra um þetta málefni við fyrsta hentugleika.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ræða við bréfritara í samræmi við umræður á fundinum og með vísan í næsta lið á dagskrá.