Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Nýsköpunarráðstefna og og verðlaun fyrir nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2015.

Málsnúmer 201406032

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 701. fundur - 26.06.2014

Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 6. júní 2014, þar sem kynnt er nýsköpunarráðstefna og afhending verðlauna fyrir nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2015, 23. janúar 2015 á Grand Hótel Reykjavík. Skilafrestur á verkefnum er til 1. nóvember 2014. Nánari upplýsingar verða sendar með bréfi til forstöðumanna stofnana og sveitarfélaga í september n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjórn að taka ofangreint til umfjöllunar.